Markaður í Árbænum á sunnudag

Menning og listir Mannlíf

""

Sannkölluð markaðsstemning verður við Menningarhúsið í Árbænum sunnudaginn 3. nóvember. Á fjölda söluborða bjóða íbúar í Árbænum og nágrenni upp á alls kyns varning og góðgæti s.s. prjónavörur, skartgripi, handverk, snyrtivörur, föt og margt fleira. Eitt er víst að það verður hægt að gera reyfarakaup!

Jón Víðis töframaður kemur og sýnir listir sínar kl.13.==

Ástir og örlög verða líka rædd hjá spákonunni Evu sem býður hraðspá fyrir gesti án endurgjalds.

Indælis rjómavöfflur verða til sölu gegn vægu gjaldi og stemningin verður eins og hún gerist best.

Allir hjartanlega velkomnir!