Mannréttindaverðlaun Reykjavíkurborgar 2018

Mannréttindi

""

Óskað er eftir tilnefningum til mannréttindaverðlauna Reykjavíkurborgar 2018. Tilnefna má einstaklinga, hópa, félagasamtök eða stofnanir sem á eftirtektarverðan hátt hafa staðið vörð um mannréttindi. 

Tilnefningar ásamt rökstuðningi skulu berast á netfangið mannrettindi@reykjavik.is

Frestur til að skila tilnefningum er 3. maí 2018.

Handhafi mannréttindaverðlauna Reykjavíkurborgar hlýtur að launum kr. 600.000,-

Verðlaunin verða afhent í Höfða af borgarstjóra Reykjavíkur þann 16. maí í tengslum við mannréttindadag Reykjavíkurborgar en markmið hans er að vekja athygli á mannréttindum borgarbúa og mannréttindastefnu borgarinnar. 

Áður hafa hlotið mannréttindaverðlaun Reykjavíkurborgar:

Alþjóðahús 2008

Rauði Kross Íslands 2009

Blátt áfram 2010

Hinsegin dagar 2011

List án landamæra 2012

Kvennathvarfið 2013

Geðhjálp 2014

Frú Ragnheiður 2015

Þórunn Ólafsdóttir 2016

Með okkar augum 2017