Mannfræði í augum krakka

""

Nú stendur yfir sýning í Gerðubergi á afrakstri krakka á aldrinum 9-12 ára, sem unnu á skapandi hátt með fyrirbærið þjóð.

Í vinnusmiðju um fyrirbærið þjóð voru lagðar fyrir krakka spurningar og umræðukveikjur. Þau ræddu svo eigin reynslu og hugmyndir og notuðu ímyndurnaraflið til að túlka þær í myndmáli og texta. 

Smiðjan er í tengslum við þróun á nýrri útgáfu í bókaröðinni Mannfræði fyrir krakka (e. Anthropology for Kids) sem áformað er að gera aðgengilega fyrir íslensk börn. Auk bókaraðarinnar samanstendur verkefnið af vinnusmiðjum og skapandi starfi sem leiðir saman sérfræðiþekkingu fullorðinna og sköpunarkraft barna og ungmenna.

Verkefnið er hugsað út frá mikilvægi þess að hvetja börn og ungt fólk til að nýta eigin sköpunarkraft, beita gagnrýnni hugsun og draga sjálfstæðar ályktanir um uppbyggingu eigin samfélags. Ekki síst eru þau hvött til að ímynda sér hið (ó)mögulega og velta fyrir sér merkingu hinna ótal þátta sem að koma saman í menningu þjóða.

Aðalhöfundur mannfræðibókanna og upphafsmaður verkefnisins er frumkvöðullinn og listakonan Nika Dubrovsky.  Hún er af rússnesku bergi brotin en lifir og starfar í Berlín, Þýskalandi. Það var Nika sjálf ásamt Ólöfu Sverrisdóttur og Söru S. Öldudóttur sem leiddu vinnusmiðju krakkanna.

Sýningin stendur til 24. ágúst. 

Verkefnið er unnið í samstarfi við Borgarbókasafnið og List fyrir alla en aðrir styrktaraðilar eru Fullveldissjóður og Goethe Institut.