Mælanleg markmið í nýrri hjólreiðaáætlun

Umhverfi Skipulagsmál

""

Reykjavíkurborg hefur fengið nýja hjólreiðaáætlun og var hún kynnt á fundi borgarráðs í gær og síðdegis opnaði Dagur B. Eggertsson borgarstjóri vefinn hjolaborgin.is þar sem áherslum áætluninnar er komið til skila.

Hjálmar Sveinsson formaður umhverfis- og skipulagsráðs kynnti nýju áætlunina á ráðstefnunni Hjólum til framtíðar sem haldin er í dag.

Stefna og aðgerðir

Hjólreiðaáætlunin felur í sér framkvæmdaáætlun fyrir næstu fimm árin í Reykjavík en samkvæmt henni er gert ráð fyrir 30 km af nýjum hjólastígum. Unnið er að bæði minniháttar tengingum sem munu bæta hjólaleiðir og tengja saman leiðir auk þess sem ráðist verður í gerð lengri hjólastíga. Á tímabilinu verður m.a. unnið að sjö kílómetra langri hjólaleið meðfram Miklubraut og Hringbraut allt frá Ánanaustum að Elliðaárdal. Þá verður lögð sérstök áhersla á góðar og betrumbættar þveranir hjólaleiða yfir gatnamót. Í því tilliti verður gerð greining á mögulegum valkostum þverana, þ.e. undirgöng, brú eða í plani, m.a.með tilliti til öryggistilfinningar notenda á stígum. Greiningin tengist markmiði um aukna öryggistilfinningu og jákvætt viðhorf fólks til hjólreiða.

Hjólreiðar verði alvöru valkostur

Í hjólreiðaáætluninni koma þó ekki aðeins fram markmið um framkvæmdir heldur einnig markmið sem miða að því að auðvelda sem flestum að nýta sér hjólreiðar sem alvöru samgönguvalkost. Markmið eru sett fram sem mælanleg markmið til þess að hægt verði að fylgjast með árangri áætlunarinnar.

Áætlunin er sett fram á nýstárlegan hátt en í stað þess að gefa hana út sem prentað plagg er hún sett fram sem aðgengileg vefsíða. Á heimasíðunni má velja milli kafla, kynna sér framkvæmdaáætlun með gagnvirkum kortum eða kynna sér áhugaverðar staðreyndir um hjólreiðar í borginni. Hér má finna heimasíðuna: www.hjolaborgin.is

Mælanlegur árangur

Í nýju hjólreiðaáætluninni er gert ráð fyrir að fylgja markmiðum eftir með mælingum á árangi.  Meðal markmiða sem mæla á eru:

  • Hlutdeild hjólandi í öllum ferðum í Reykjavík verði a.m.k. 6% árið 2017 og 6,5% árið 2020.
  • Hlutdeild hjólandi og gangandi í öllum ferðum í Reykjavík verði a.m.k. 25% árið 2017 og 26% árið 2020.  Þetta hlutfall er núna 5,5%.
  • Hlutfall hjólaleiða af heildar stígakerfinu sem eru aðgreindar frá bílum og gangandi verði 6% árið 2017 og 8% árið 2020. Er tæplega 4,5% í dag.
  • Að árið 2020 verði hjólastæði við alla grunnskóla Reykjavíkurborgar fyrir 20% af nemendum og starfsfólki.
  • Hafin verði markviss vinna að því að helmingur hjólastæða við grunnskóla verði yfirbyggð.  Í dag uppfylla 5 skólar þetta markmið, 17 skólar eru með hjólastæði fyrir rúmlega 10% nemenda og starfsfólks, en við 15 skóla eru færri hjólastæði.
  • Gerð verði könnun á öryggistilfinningu og viðhorfi fólks til hjólreiða á árinu 2017 og stefnt að jákvæðri þróun á báðum þáttum í könnun árið 2020.

Samgöngusamningar í samstarfi við atvinnulífið

Reykjavíkurborg ætlar að starfa með aðilum vinnumarkaðarins til að fjölga þeim sem hjóla í og úr vinnu í borginni. Áhersla verði lögð á að kynna fyrirtækjum og einstaklingum ávinning beggja aðila af auknum hjólreiðum og jákvæðum áhrifum samgöngusamninga.

Það hefur færst mjög í vöxt að fyrirtæki bjóði starfsmönnum sínum að gera samgöngusamninga þar sem starfsmenn skuldbinda sig til að nota vistvæna samgöngumáta á leið til og frá vinnu a.m.k. þrjá daga í viku og eða til ferða á vegum vinnuveitanda. Fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu sem nú bjóða starfsmönnum slíka samninga eru á annað hundrað.

Ávinningur af því þegar starfsmenn mæta á hjóli í stað bíls er töluverður. Hver starfsmaður sem mætir á hjóli í stað einkabíls sparar fyrirtækinu árlega:

  • Að meðaltali um 40.000 krónur í færri veikindadaga.
  • Að meðaltali um 230.000 krónur á ári í bílastæðakostnað.

Heimild: Rannsóknir frá TNO (2009) og VTPI (2015).

 

Hjolaborgin.is

Nýi vefurinn er hannaður af Brandenburg fyrir Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar.