Lýðheilsugöngur Ferðafélags Íslands í september

Íþróttir og útivist Mannlíf

""

Lýðheilsugöngur Ferðafélags Íslands (FÍ) verða vítt og breitt um landið nú í september. Göngurnar munu fara fram alla miðvikudaga í septembermánuði kl. 18:00 og er fyrsta gangan 5. september.

Þetta eru fjölskylduvænar göngur sem taka  u.þ.b. 60-90 mínútur og er tilgangur þeirra að hvetja fólk til útivistar og hreyfingar í góðum félagsskap og efla þar með heilsu sína og lífsgæði. Í Reykjavík verður gengið á tveimur stöðum, frá Árbæjarlaug og frá inngangi Fjölskyldu- og húsdýragarðsins í Laugardal.

Allar upplýsingar um göngustaði vítt og breitt um landið má nálgast á lydheilsa.is.

September

Miðvikudagar kl. 18:00

60-90 mínútur

Fjölskylduvænar göngur

Vonandi reima sem flestir á sig gönguskóna með okkur á miðvikudögum í september, fara út í náttúruna og njóta fallega landsins okkar.

LIFUM OG NJÓTUM!