Lóðaúthlutanir og ný byggingarsvæði

Framkvæmdir Mannlíf

""

Borgarstjórinn í Reykjavík, Dagur B. Eggertsson, býður til opins fundar um lóðaúthlutanir, uppbyggingu íbúða og atvinnustarfsemi. Fundurinn sem er öllum opinn verður haldinn föstudaginn 2. mars kl. 9.00-11.00 í Ráðhúsi Reykjavíkur.

Á fundinum verða kynntar nýjar lóðir sem eru tilbúnar til úthlutunar. Þá kynnir borgarstjóri næstu þróunarsvæði og fer yfir hugmyndir að því hvernig auka megi samstarf við þróunar- og uppbyggingaraðila.

Ólafur Heiðar Helgason, hagfræðingur hjá Íbúðalánasjóði flytur erindi.

 

Fundinum verður streymt á vefsíðuna http://reykjavik.is/lodauthlutanir

Sjá viðburð á Facebook.