Lestur er bestur – fyrir vísindin

Mannlíf Mannréttindi

""

Sævar Helgi Bragason, stundum betur þekktur sem Stjörnu-Sævar, mun heimsækja Borgarbókasafnið í Kringlunni og fræða okkur um himingeiminn. 

Viðburður er haldinn í tilefni af bókasafnsdeginum sem er haldin hátíðlegur 7.september, þemað í ár er: Lestur er bestur - fyrir vísindin!

Hvað sjást margar stjörnur á himninum? Gæti verið líf á öðrum hnöttum? Hvað eru svarthol? Þessum spurningum og fjölmörgum öðrum verður (kannski) svarað. Við skoðum stjörnuhiminninn fyrir ofan okkur, finnum út af hverju tunglið er stundum fullt, stundum hálft og stundum nýtt og skoðum loftsteina frá tunglinu og Mars. Alheimurinn allur er undir svo þetta verður ekkert nema líf og fjör!