Tilnefningar óskast til loftslagsviðurkenningar Reykjavíkurborgar og Festu fyrir árið 2020. Hægt er að tilnefna fyrirtæki, félagasamtök, stofnanir eða einstaklinga. Tilnefningar þurfa að berast fyrir 27. október en viðurkenningin verður veitt á loftslagsfundi þann 27. nóvember.
Markmið viðurkenningarinnar er að vekja athygli á því sem vel er gert í loftslagsmálum og vera hvatning. Tilnefningarnar geta verið frá aðilunum sjálfum eða öðrum.
Tillögur skal merkja „Loftslagsviðurkenning 2020“ og senda á netfangið usk@reykjavik.is eða með pósti til Reykjavíkurborgar, Borgartúni 12 – 14, 105 Reykjavík.
Óskað er eftir rökstuðningi með tilnefningunni en nánari upplýsingar má finna á þessu eyðublaði sem hægt er að styðjast við.
Verðlaunin voru veitt í fyrsta sinn árið 2017 en verkfræðistofan EFLA hlaut viðurkenninguna á síðasta ári.