Leitað eftir hugmyndum - Reykjavík kolefnishlutlaus 2040

Umhverfi Skipulagsmál

""

Reykjavíkurborg ætlar að verða kolefnishlutlaus 2040. Samkvæmt Parísarsamningnum ber hvert land, sem á aðild að samningnum, ábyrgð á losun sem á sér stað innan sinna landamæra.

Loftslagsstefna Reykjavíkurborgar var sett árið 2016 og ítarleg aðgerðaráætlun fylgdi henni sjá: Loftslagsstefna Reykjavíkurborgar.

Í Parísarsamningnum er hugtakið kolefnishlutleysi skilgreint þannig að jafnvægi sé náð milli losunar gróðurhúsalofttegunda frá manngerðum uppsprettum og bindingu þannig að nettó útstreymi þeirra sé jafnt núlli. Samkvæmt samningnum ber hvert land ábyrgð á losun sem á sér stað innan sinna landamæra.

Nú er kominn tími til að endurskoða áætlunina og er leitað eftir hugmyndum frá öllum sem láta sig málið varða. Hvernig nær Reykjavík kolefnishlutleysi? Hver er losunin í dag og hver er bindingin og hve miklu munar á milli til að núlli sé náð?

Hægt er að senda inn hugmyndir og tillögur í gegnum vefgátt til og með 8. desember nk.