Leikskólinn Furuskógur kominn með regnbogavottun

Regbogafáninn dreginn að húni í fyrsta sinn í leikskólanum Furuskógi

Regnbogafáninn var dreginn að húni í Leikskólanum Furuskógi í fyrsta sinn í gær.

Völdu daginn til að flagga gaumgæfilega

Ingibjörg Brynjarsdóttir leikskólastjóri segir þau í leikskólanum hafa stolt tekið á móti Regnbogavottun Reykjavíkurborgar í apríl síðastliðnum. Það var svo í gær, 17. maí, á alþjóðlegum degi gegn fordómum í garð hinsegin fólks sem starfsfólk leikskólans valdi að flagga fánanum í fyrsta sinn.

Í regnbogavottun felst að allt starfsfólk hefur fengið fræðslu um hinseginleika og leikskólinn er orðinn hinsegin-vænn vinnustaður.

Regnbogavottun Reykjavíkurborgar byggir á sambærilegum vottunarferlum hjá t.d. Human Rights CampaignStonewall UK og RFSL í Svíþjóð þar sem skilyrði eru sett um að stefnur fyrirtækja nefni hinsegin fólk og að réttindi og jöfn staða hinsegin starfsfólks sé tryggð. Til mark um regnbogavottun fá stofnanir og fyrirtæki viðurkenningu og regnbogafána, líkt og leikskólinn Furuskógur getur nú státað sig af.