Leikskólastjórar á Suðurborg og Hólaborg

Skóli og frístund

""

Búið er að ganga frá ráðningu leikskólastjóra á leikskólunum Suðurborg og Hólaborg.

Berglind Hallgrímsdóttir hefur verið ráðin leikskólastjóri við Suðurborg í Suðurhólum efra-Breiðholts. Berglind útskrifaðist með B.Ed í leikskólafræðum árið 1999 og lauk M.Ed í stjórnunarfræðum menntastofnana árið 2010. Berglind hefur starfað í Suðurborg frá árinu 1999 auk þess sem hún hefur stýrt leikskólanum í afleysingum sl. ár.

Sigrún Grétarsdóttir er ráðin leikskólastjóri við Hólaborg sem einnig er við Suðurhóla efra-Breiðholts. Sigrún lauk B.Ed. í leikskólafræðum 1999 og hefur starfað sem stjórnandi í Hólaborg allt frá útskrift og núna síðasta árið sem leikskólastjóri í afleysingum.

Suðurborg, vefsíða

Hólaborg, vefsíða