Leiðbeiningar um heimsóknir vegna COVID-19

Covid-19 Velferð

""

Vegna innanlandssmita og mögulegrar hópsýkingar á höfuðborgarsvæðinu hefur neyðarstjórn velferðarsviðs Reykjavíkurborgar gefið út tilmæli um heimsóknir í þjónustuíbúðir fyrir aldraða, á hjúkrunarheimili og íbúðakjarna/sambýli í húsnæði fyrir fatlað fólk.

  • Fólk sem hefur verið erlendis á EKKI að heimsækja íbúa í 14 daga eftir komu til landsins. Þetta gildir einnig þó ekki hafi greinst smit við sýnatöku á landamærum.
  • Fólk sem hefur umgengist einstaklinga með smit á EKKI að heimsækja íbúa.
  • Fólk sem finnur fyrir kvefi eða flensulíkum einkennum á EKKI að heimsækja íbúa.
  • Þeir sem hafa verið í einangrun vegna COVID-19 smits og ekki eru liðnir 14 dagar frá útskrift mega EKKI heimsækja íbúa.

Tilmæli neyðarstjórnar byggjast á leiðbeiningum Embættis landlæknis fyrir Íslendinga á ferð erlendis, en þar kemur eftirfarandi fram:

"Það er eindregin tilmæli til Íslendinga og annarra íbúa sem eru að koma heim erlendis frá að þrátt fyrir að valið sé að fara í PCR-próf og það sé neikvætt, að þeir haldi sig sem mest til hlés fyrstu tvær vikurnar eftir heimkomu og haldi áfram að gæta ítrustu varúðar. Mælt er með að heimsækja ekki á þessum tíma þá sem eru í áhættuhópum vegna COVID-19."

 

Starfsfólk í þjónustuíbúðum fyrir aldraða, á hjúkrunarheimilum, íbúðakjörnum/sambýlum og heimaþjónustu fer eftir sömu tilmælum í starfi sínu.

Aðrir gestir geta heimsótt íbúa, en mikilvægt er að fyllstu varúðar sé gætt og samfélagssáttmáli hafður í heiðri.

Neyðarstjórn velferðarsviðs mun endurmeta stöðu mála þann 13. júlí nk.