Legionella sýking á Droplaugarstöðum

Velferð

""

Ekki hefur enn tekist að uppræta legionella-sýkingu (hermannaveiki) sem fannst á Droplaugarstöðum og verður nú brugðist við með  umfangsmeiri aðgerðum en áður til að ráða bug á vandanum.

Ljóst þykir að þessi bakteríusýking sem uppgötvaðist um miðjan ágúst á hugsanlega uppruna sinn einhvers staðar utan lagna í vatnskerfi hjúkrunarheimilisins. Því þarf að  grípa til flóknari aðgerða sem Verkfræðistofan Mannvit mun sjá um. Þá er fyrirsjáanlegt að verkið mun taka lengri tíma en áður var áætlað.

Þar til legionella-bakterían hefur verið upprætt með öllu verða gerðar ráðstafanir til þess að vernda íbúa hjúkrunarheimilisins, sem sumir hverjir eru viðkvæmir fyrir.

Bakterían smitast ekki milli manna. Einn maður fékk sýkingu um miðjan ágúst og náði hann fullum bata. Ekki hafa aðrir á heimilinu sýkst.