Lausnir á áskorunum í samfélaginu

Samgöngur Umhverfi

""

Frestur til að skila inn umsóknum í Snjallræði viðskiptahraðal lýkur þann 17. janúar nk. Valin verða allt að átta frumkvöðlateymi til þátttöku í Snjallræði, átta vikna viðskiptahraðli sem einblínir á samfélagslegar lausnir og hefur göngu sína þann 1. febrúar nk.

Snjallræði er ætlað að styðja við samfélagslegar lausnir og frumkvöðlastarfsemi sem byggir á heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun. Það geta verið lausnir sem snúa að heilbrigðisþjónustu og vellíðan, bættu menntakerfi, endurnýtanlegri orku, samgöngumálum og matarsóun, svo dæmi séu tekin.

Þátttakendur fá aðgang að fræðslu og þjálfun frá innlendum og erlendum sérfræðingum á sviði samfélagsmála og nýsköpunar og fundi með fjölda leiðbeinenda úr atvinnulífinu.

“Aðferðarfræðin sem er notuð snýst um að beita hönnunarhugsun í nýsköpun og hanna sprotafyrirtæki sem huga betur að þörfum fólks og umhverfisins alls. “ segir Svafa Grönfeldt, ein af stofnendum MIT designX í Boston sem situr í ráðgjafaráði Snjallræðis.

Að verkefninu koma sérfræðingar frá MIT designX, Háskóla Íslands, Listaháskóla Íslands og Háskólanum í Reykjavík. Að verkefninu stendur Höfði friðarsetur en auk háskólanna eru samstarfsaðilar Reykjavíkurborg, atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið, Festa - miðstöð um samfélagsábyrgð, Össur, Deloitte, Marel og Landsvirkjun. Framkvæmd verkefnisins er unnin í samstarfi við Icelandic Startups.

Hægt er að sækja um þátttöku á vefsíðunni snjallraedi.is fram til 17. janúar n.k.

Nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni snjallraedi.is og hjá Icelandic Startups.