Kynningarfundur Reykjanesbraut - Bústaðavegur

Framkvæmdir Skipulagsmál

Reykjanesbraut

Vegagerðin, í samvinnu við Reykjavíkurborg og Betri samgöngur, áformar breytingar á gatnamótum Reykjanesbrautar og Bústaðavegar. Hluti af framkvæmdinni felst í því að útfæra leið Borgarlínu milli Vogabyggðar og Stekkjarbakka. Tilgangur framkvæmdanna er að efla samgöngur allra ferðamáta, minnka umferðartafir á háannatíma og auka umferðaröryggi.

Kynningarfundur verður haldinn 29. mars

Kynningarfundur um fyrirhugaðar breytingar á gatnamótum Reykjanesbrautar og Bústaðavegar í tengslum við matsáætlun vegna umhverfisáhrifa verður haldinn 29. mars í Vindheimum (salur) á 7. hæð í húsakynnum Reykjavíkurborgar í Borgartúni 14, eystri inngangur. Fundurinn hefst klukkan 17:00.

Á fundinum verður framkvæmdin og áherslur komandi umhverfismats vegna hennar kynntar. Til skoðunar eru lausnir fyrir útfærslu á gatnamótum Reykjanesbrautar og Bústaðavegar. Þá verða einnig lausnir skoðaðar fyrir leið Borgarlínu um gatnamótin auk tengingar hennar við Vogabyggð.

Skipulagsstofnun gerir ekki athugasemdir við matsáætlunina sem gerð hefur verið. Vegagerðin, Reykjavíkurborg og Betri samgöngur standa saman að fundinum en auk fulltrúa þeirra verða á fundinum fulltrúar verkfræðistofunnar EFLU sem er ráðgjafi tillagnanna.

Matsáætlun vegna umhverfisáhrifa.

Val á lausnum kynnt á fundinum

Til skoðunar er að vera með vinstri beygju á brú af Reykjanesbraut inn á Bústaðaveg en einnig verður kynnt önnur lausn þar sem brú er sleppt og aðeins leyfð hægri beygja inn og út af Bústaðavegi. Tvær lausnir verða skoðaðar fyrir leið Borgarlínu um gatnamótin auk þess sem fjallað verður um mögulegar útfærslur á tengingu Borgarlínu við Vogabyggð. Ekki er gert ráð fyrir umferðarljósum á Reykjanesbraut í neinum af þessum tillögum.

Þeir umhverfisþættir sem lagt verður mat á, samkvæmt matsáætlun, eru fornleifar, jarðmyndanir, hljóðvist, staðbundin loftgæði, loftslag, landslag og sjónrænir þættir, náttúruminjar, samgöngur og umferðaröryggi, útivist, vatnafar og vatnalíf. Í matsáætlun er því lýst hvernig staðið verður að rannsóknum og mati á áhrifum fyrirhugaðrar framkvæmdar. Einnig er gerð grein fyrir því hvernig framkvæmdin samræmist gildandi skipulagsáætlunum og öðrum opinberum stefnum.

Fimm vikur til að senda athugasemdir

Framkvæmdin er matsskyld samkvæmt lögum um umhverfismat framkvæmda og áætlana. Matsáætlun vegna framkvæmda við gatnamót Reykjanesbrautar og Bústaðavegar, að teknu tilliti til Borgarlínu, verður nú kynnt almenningi og hagsmunaaðilum um fimm vikna skeið.

Á þessu tímabili gefst almenningi tækifæri til að koma með athugasemdir við matsáætlun og á sama tíma mun Skipulagsstofnun leita umsagna lögboðinna umsagnaraðila.

Skriflegar athugasemdir skulu sendar til Skipulagsstofnunar, Borgartúni 7b, 105 Reykjavík, eða á netfangið skipulag@skipulag.is.