Kjarvalsstaðir verða opnir til kl. 22 í kvöld og er ókeypis inn frá kl. 17. Boðið verður upp á tónlist og leiðsagnir og hefst dagskráin kl. 19. Kvöldopnunin er haldin í tilefni af hverfaviku borgarinnar í Hlíðum, Norðurmýri og Holtum.
Kjarvalsstaðir verða opnir til kl. 22 í kvöld og er ókeypis inn frá kl. 17.
Boðið verður upp á tónlist og leiðsagnir og hefst dagskráin kl. 19. Kvöldopnunin er haldin í tilefni af hverfaviku borgarinnar í Hlíðum, Norðurmýri og Holtum.
Happy Hour verður á veitingastaðnum á Kjarvalsstöðum frá kl. 16.30-19.30.
Gestum á kvöldopnun býðst að kaupa Menningarkort með 20% afslætti og ef keypt eru tvö kort fást þau á verði eins.
Dagskrá kvöldopnunar:
Kl. 19-22
Þorvaldur Örn Davíðsson píanóleikari og tónskáld leikur fyrir gesti.
Kl. 20
Anna Jóa, sýningarstjóri og Rósa Gísladóttir myndlistarmaður leiða gesti um sýninguna Kvennatími – Hér og nú þrjátíu árum síðar.
Kl. 21
Steinunn G. Helgadóttir, myndlistarmaður og rithöfundur leiðir gesti um sýninguna Út á spássíuna – textar, skissur, og pár í list Kjarvals.