Kvenréttindagur íslenskra kvenna

""

Blómsveigur verður lagður að leiði Bríetar Bjarnhéðinsdóttur á kvenréttindadegi íslenskra kvenna, í dag, mánudagurinn 19. júní kl. 14:30.

Forseti borgarstjórnar, Líf Magneudóttir,  leggur blómsveiginn að leiðinu og flytur stutt ávarp. Ragnheiður Gröndal fllytur tónlist.

Viðburðurinn er haldinn í Hólavallakirkjugarði við Suðurgötu og það er öllum velkomið að koma og eiga hátíðlega stund í minningu Bríetar og réttindabaráttu kvenna.

Bríet Bjarnhéðinsdóttur átti ríkan þátt í að koma á réttarbótum konum til handa og efla þannig lýðræðissamfélagið í heild sinni. Hún var stofnandi Kvenréttindafélags Íslands og var fyrsti formaður félagsins frá stofnun allt til ársins 1928. Markmið félagsins var að starfa að því að íslenskar konur fengju fullt stjórnmálajafnrétti á við karlmenn, kosningarétt, kjörgengi svo og embættisgengi og rétt til atvinnu með sömu skilyrðum og karlmenn.

Konur í Reykjavík buðu fram Kvennalista fyrir bæjarstjórnarkosningar árið 1908 og var það fyrsta sérframboð kvenna á Íslandi.

Þann 19. júní  árið 1915 fengu giftar konur kosningarétt og kjörgengi í Reykjavík og Hafnarfirði og öðluðust þar með sjálfstæði frá eiginmönnum sínum til pólitískrar þátttöku, en ekkjur og ógiftar konur höfðu þá haft kosningarétt í um aldarfjórðung. Árið 1920 fengu íslenskar konur og hjú full pólitísk réttindi 25 ára.

Bríet lést í Reykjavík árið 1940.