Jólamarkaður í Hjartagarðinum

Umhverfi Mannlíf

""

Jólamarkaðurinn í Hjartagarðinum var opnaður um síðustu helgi og verður opinn fram að jólum. Boðið er upp á ýmsan varning og skemmtiatriði.

Jólamarkaðurinn í Hjartagarðinum er klassískur jólamarkaður að evrópskum sið. Þar má finna handverk af ýmsu tagi, góðgæti, heitt súkkulaði og hið margrómaða jólaglögg að ógleymdum hinum eina sanna jólaanda.

Góðir gestir heimsækja markaðinn og ættu þeir að koma öllum í jólaskap og hver veit nema jólasveinarnir, Grýla eða Leppalúði verði á ferðinni.

Sjá dagskrá

Opnunartímar markaðarins verða eftirfarandi í ár:

Laugardagurinn 14. desember: 13:00 - 22:00

Sunnudagurinn 15. desember: 13:00 - 22:00

Mánudagurinn 16. desember: 16:00 - 22:00

Þriðjudagurinn 17. desember: 16:00 - 22:00

Miðvikudagurinn 18. desember: 16:00 - 22:00

Fimmtudagurinn 19. desember: 16:00 - 22:00

Föstudagurinn 20. desember: 16:00 - 22:00

Laugardagurinn 21. desember: 13:00 - 22:00

Sunnudagurinn 22. desember: 13:00 - 22:00

Sjá viðburð á Facebook