Jólaljósin tendruð á Oslóartrénu á Austurvelli

Mannlíf Menning og listir

""

Ljósin á Oslóartrénu á Austurvelli verða tendruð sunnudaginn 2. desember. Tendrun jólaljósanna á Oslóartrénu markar upphaf aðventunnar í borginni og minnir sem fyrr á áratuga vinasamband Reykjavíkur og Oslóarborgar.

Dagskárin hefst klukkan 16.00 en þá mun Peter N. Myhre borgarfulltrúi í Osló ávarpa samkomuna og afhendir borgarstjóra bókagjöf til allra grunnskóla Reykjavíkur. Um er að ræða fjórar þýddar bækur um Doktor Proktor eftir Jo Nesbö.

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri kveikir síðan á ljósum trésins og nýtur dyggrar aðstoðar norsk-íslensku systranna Heklu Tómasdóttur Albrigtsen 9 ára og Önnu Tómasdóttur Albrigtsen 7 ára.

Svala Björgvins og Friðrik Ómar flytja falleg jólalög ásamt hljómsveit. Einnig munu jólasveinar stelast í bæinn og syngja og skemmta kátum krökkum.

Lúðrasveit Reykjavíkur leikur jólatónlist frá kl.15.30. Kynnir er Katla Margrét Þorgeirsdóttir og verður dagskráin túlkuð á táknmáli.

Jólaórói Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra prýðir jólatréð og í ár. Dögg Guðmunsdóttir hannar óróann og rithöfundurinn Dagur Hjartarson samdi kvæðið sem fylgir með óróanum. Allur ágóði af sölu óróans rennur til Æfingastöðvarinnar, þar sem börn fá sjúkra- og iðjuþjálfun. Reykjavíkurborg hefur frá upphafi stutt verkefnið.

Rauði Krossinn verður með sölu á heitu kakói til að verma kalda kroppa.

Viðburðurinn á Facebook

Gleðilega hátíð!