Innritun í skólahljómsveitir hefst föstudaginn 3. apríl

Skóli og frístund

""

Tekið verður á móti umsóknum í skólahljómsveitirnar fjórar í Reykjavík frá og með föstudeginum 3. apríl næstkomandi. Short version in English and Polish below.

IFrá og með föstudeginum 3. apríl kl. 09.00 verður hægt að sækja um nám í skólahljómsveit. Allar umsóknir fara í gegnum Rafræna Reykjavík. 
Formlegur umsóknarfrestur rennur út 15. maí vegna skólaársins 2020-2021, en þó er hægt að skila inn umsóknum allt árið vegna yfirstandandi skólaárs hverju sinni ef forráðamenn vilja að barn sé sett á biðlista.

Inntaka í hljómsveitirnar byggir á m.a. á tímasetningu umsóknar og hvort laust er á hljóðfærið sem sótt er um í skóla hvers barns. Sjá kynningarblað um skólahljómsveitirnar. 

Nám og Námsgjöld  - haustönn 2020

Í skólahljómsveitum er kennt á öll helstu málm- og tréblásturshljóðfæri auk slagverkshljóðfæra. Einnig eru dæmi um að kennt sé á bassa. Hægt er að leigja hljóðfæri hjá sveitunum. Námsgjöld á haustönn 2020 eru kr.14.800 og hljóðfæragjald fyrir þá önn er kr. 4.500.

Metnaðarfullt hljóðfæranám hjá úrvalskennurum

Í skólahljómsveitum er boðið upp á metnaðarfullt hljóðfæranám með vel menntuðum og reynslumiklum kennurum. Námið tekur mið af aðalnámskrá tónlistarskóla.

Aðaláhersla á samspil - skylduþátttaka

Mikilvægt er að nemendur sem hefja nám í skólahljómsveit geri sér grein fyrir því að aðaláherslan er á samspil og að allir nemendur eiga að taka virkan þátt í æfingum sveitanna og tónleikahaldi. Í einkatímum fá nemendur kennslu og þjálfun í að spila á sitt hljóðfæri.

Þegar teknir eru inn nemendur í skólahljómsveitir borgarinnar er stuðst við eftirfarandi viðmið;

  • Nemendur sem eru í hljómsveitinni og ætla að halda áfram ganga fyrir.
  • Umsóknir sem berast fyrir 1. júní njóta forgangs.
  • Umsóknir sem berast eftir 1. júní verða teknar til umfjöllunar áður en starfið hefst.
  • Lágmarksaldur nemenda við inntöku í skólahljómsveitir er 8 ár eða nemendur í 3. bekk.
  • Hafi nemandi verið á biðlista eru meiri líkur á að hann fái pláss í hljómsveit.
  • Skólahljómsveitirnar eru fjórar: Skólahljómsveit Austurbæjar, Skólahljómsveit Árbæjar og Breiðholts, Skólahljómsveit Grafarvogs og Skólahljómsveit Miðbæjar og Vesturbæjar. Hver hljómsveit þjónar ákveðnu afmörkuðu hverfi. Umsóknir sem koma úr hverfi hljómsveitarinnar ganga fyrir.
  • Umsóknir nemenda sem eru í 4. bekk ganga að jafnaði fyrir.
  • Nemendur sem koma úr tónlistarnámi annars staðar, t.d. öðrum skólahljómsveitum eða öðrum tónlistarskólum, geta gengið fyrir inn í námið en sú afgreiðsla er háð ákvörðun stjórnanda hverju sinni.
  • Það getur skipt máli hvaða hljóðfæri er sótt um. Flókin samsetning skólahljómsveita, staðsetninga kennara í skólum og á hvaða hljóðfæri viðkomandi kennari kennir, hefur áhrif á inntöku nýrra nemenda.
  • Framboð hljóðfæra í einstökum skólum getur verið breytilegt milli ára.

Meira um skólahljómsveitirnar 

Kynningarblað um skólahljómsveitirnar. 

In English 

Electronic applications for enrollment in the four School Orchestras in Reykjavik will be opened at 09:00 Friday, April 3rd. 2020. Please access the application through Electronic Reykjavík -  rafraen.reykjavik.is

Applications for next year will be formally open until 15th of May 2020, but it will be possible to apply during the school year if parents want the childs name to be on the waiting lists.

The enrollment for each child is based on the time of the application, as  well as the possibility of offering the specific instrument training the childs school.

In Polish 

Orkiestra szkolna w Reykjaviku – Wniosk na rok szkolny: 2020/2021

Wnioski o zapisy do orkiestry szkolnej, przyjmowane są w czterech szkołach w Reykjavík, od 3-go kwietnia 2020, od godz.: 9.00.

Zapisy odbyawją się poprzez stronę internenową Urzędu Miasta Reykjavík -rafraen.reykjavik.is.

Formalny termin składania wniosków upływa 15 maja 2020, na rok szkony 2020/2021, wnioski mogą być składane przez cały rok ,w dowolnym momencie, jeśli rodzice/opiekunowie chcą, aby dziecko zostało umieszczone na liście oczekujących.

Organizacja zespołu do orkiestry jest oparta, między innymi na: grafiku aplikacji oraz tym, czy instrument używany przez ucznia jest dostępny w szkole.

Można umieścić dodatkowy komentarz  w aplikacji, na przykład : o poprzedniej szkole muzycznej, byciu na liście oczekujących i itp.

Osoby, które starały się o przyjęcie do orkiestry szkolnej, proszone są o powtóre wypełnienie wniosku/ aplikacji na prawidłowy rok szkolny tj. 2020/2021.