Innköllun á Tuborg Classic bjór í 50 cl dósum

Heilbrigðiseftirlit Innkallanir matvæla

""

Fréttatilkynning frá matvælaeftirliti Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur um innköllun á Tuborg Classic bjór í 50 cl dósum.

Innköllun á Tuborg Classic bjór í 50 cl dósum vegna þess að varan getur innihaldið aðskotahluti (gler eða brot úr hörðu plasti).

Ölgerðin Egill Skallagrímsson ehf. (Ölgerðin) hefur, að höfðu samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, innkallað Tuborg Classic bjór í 50 cl dósum vegna þess að glerbrot eða brot úr hörðu plasti fundust í einni dós.

Eftirfarandi upplýsingar auðkenna vöruna sem innköllunin einskorðast við:

Vöruheiti:  Classic bjór.

Lotunúmer: 02L17263 002359.

Pökkunardagur: 20.09.17.

Best fyrir: 20.03.18.

Nettómagn: 50 cl.

Dreifing: Verslanir ÁTVR um land allt.

Viðskiptavinum sem hafa keypt vöruna er bent á að neyta hennar ekki og farga eða skila henni til  Ölgerðarinnar eða í næstu verslun ÁTVR og fá nýja vöru í staðinn.  Nánari upplýsingar fást hjá Ölgerðinni, Grjóthálsi 7-11, 110 Reykjavík, í síma 412 8000 eða á netfanginu olgerdin@olgerdin.is.