Innköllun á þaratöflum frá Gula miðanum - of mikið af joði

Heilbrigðiseftirlit

""

Heilsa ehf. hefur, í samráði við matvælaeftirlit Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, innkallað fæðubótarefnið Íslenskar Þaratöflur frá Gula miðanum vegna þess að varan inniheldur of mikið af steinefninu joði. 

Samkvæmt upplýsingum á umbúðum vörunnar á hún að innihalda 220 µg af joði í ráðlögðum daglegum neysluskammti sem er ein tafla á dag.  Töflurnar hafa verið efnamældar og kom í ljós að magn joðs er 800 µg í hverri töflu.  Efri öryggismörk joðs samkvæmt Matvælaöryggisstofnun Evrópu (EFSA) eru 600 µg á dag.

Eftirfarandi upplýsingar auðkenna vöruna sem innköllunin einskorðast við:

Vörumerki

Guli Miðinn.

Vöruheiti

Íslenskar Þaratöflur.

Strikanúmer

5690684000127

Lotunúmer

Öll lotunúmer.

Best fyrir

Allar best fyrir dagsetningar.

Nettómagn

120 töflur.

Framleiðandi (pökkun)

Heilsa ehf., Bæjarflöt 1-3, 112 Reykjavík.

Framleiðsluland

Ísland.

Dreifing

Varan hefur verið seld í eftirfarandi heilsuverslunum, apótekum:

Apótekaranum, Apóteki Garðabæjar, Apóteki Hafnarfjarðar, Apóteki Mosfellsbæjar, Apóteki Vesturlands, Apótekinu, Austurbæjarapóteki, Árbæjarapóteki, Borgar Apóteki, Garðs Apóteki, Heilsuhúsinu, Lyfjaveri / Heilsuveri, Lyfju, Lyfjum og heilsu, Reykjanesapóteki, Reykjavíkur Apóteki, Rima apóteki, Siglufjarðar Apóteki og Urðarapóteki.

 

Varan hefur verið seld í eftirfarandi verslunum og stórmörkuðum:

Fjarðarkaup, Hagkaup, Hlíðarkaup, Iceland, Kaupfélag Skagfirðinga, Kjörbúðinni, Krónunni, Melabúðin, Nettó og Verslun Einars Ólafssonar

Viðskiptavinum sem hafa keypt vöruna er bent á að neyta hennar ekki og farga eða skila henni í þeirri verslun þar sem hún var keypt gegn endurgreiðslu.