Innköllun á Síríus rjómasúkkulaði með saltlakkrísflögum og sjávarsalti

Heilbrigðiseftirlit Innkallanir matvæla

""

Nói Síríus hefur, í samráði við matvælaeftirlit Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, innkallað Síríus rjómasúkkulaði með saltlakkrísflögum og sjávarsalti. Í ljós hefur komið að í hluta framleiðslulotu hefur röng vara blandast saman við rétta í pökkun. Sú vara sem pakkað var ranglega inniheldur ofnæmis- eða óþolsvaldinn heslihnetur en sú rétta ekki og því kemur ekki fram í listanum yfir innihaldsefnin að varan inniheldur heslihnetur.

Eftirfarandi upplýsingar auðkenna vöruna sem innköllunin einskorðast við:

Vörumerki:  Síríus.

Vöruheiti:  Rjómasúkkulaði með saltlakkrísflögum og sjávarsalti.

Best fyrir:  04. janúar 2020.

Lotunúmer: L1868.
Framleiðandi:  Nói Síríus, Hesthálsi 2-4, 110 Reykjavík.

Framleiðsluland:  Ísland.

Dreifing:  Verslanir Krónunnar ehf. um land allt.

Hnetur, þ.m.t. heslihnetur, og afurðir úr þeim eru á lista yfir ofnæmis- eða óþolsvalda.  Tekið skal fram að varan er skaðlaus þeim sem ekki eru viðkvæmir fyrir hnetum og afurðum úr þeim. 

Viðskiptavinir sem keypt hafa umrædda vöru og eru viðkvæmir fyrir hnetum og afurðum úr þeim eru hvattir til að neyta hennar ekki og farga.  Nánari upplýsingar um innköllunina veitir Nói Síríus í síma 575 1800.