Innköllun á Rema1000 hnetum vegna aflatoxin b1 yfir hámarksgildum.
Innkallanir matvæla Heilbrigðiseftirlit
Super1 hefur, í samráði við matvælaeftirlit Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, innkallað þrjár vörur af Rema1000 hnetum þar sem aflatoxin b1 mældist yfir hámarksgildum.
Eftirfarandi upplýsingar auðkenna vörurnar sem innköllunin einskorðast við:
Vöruheiti: Rema 1000 NØdder Salt & SØdt
Nettómagn: 165 g
Lotunúmer: 96174
Best fyrir: 30/08/2020
Vöruheiti: Rema 1000 NØdder Salt & Stærk
Nettómagn: 165 g
Lotunúmer: 96087
Best fyrir: 28/08/2020
Vöruheiti: Rema 1000 Saltede Peanuts
Nettómagn: 250 g
Lotunúmer: 95893, 95924, 95929, 95927
Best fyrir: 21/08/2020
Dreifing og innflutningur: Super1
Neytendur sem keypt hafa vörurnar með best fyrir dagsetningum og lotunúmerum sem kom fram hér að ofan ættu að farga vörunni eða skila vörunni í verslun SUPER1 við Hallveigarstíg gegn fullri endurgreiðslu.
Nánari upplýsingar má nálgast hjá framkvæmdarstjóra SUPER1 Sigurð Pálma Sigurbjörnsson: siggip@super1.is.