Innköllun á hrísgrjónaolíu vegna aðskotaefna í vöru

Innkallanir matvæla Heilbrigðiseftirlit

""

Dai Phat Trading ehf. hefur, í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, innkallað hrísgrjónaolíu vegna aðskotaefna (Glycidyl ester) í vörunni.  

Eftirfarandi upplýsingar auðkenna vöruna sem innköllunin einskorðast við:

  • Vörumerki: Rizi
  • Vöruheiti: Reisöl
  • Strikanúmer: 8850345950490
  • Best fyrir: 09.03.2021
  • Nettómagn: 500 ml
  • Framleiðsluland: Thailand
  • Innflytjandi: Dai Phat Trading ehf, Faxafeni 14, 108 Reykjavík.
  • Dreifing: Dai Phat Trading ehf, Faxafeni 14, 108 Reykjavík.

Viðskiptavinum sem hafa keypt vöruna er bent á að neyta hennar ekki og farga eða skila henni í þeirri verslun þar sem hún var keypt gegn endurgreiðslu.