Innköllun á hrísgrjónaolíu vegna aðskotaefna

Heilbrigðiseftirlit

""

Dai Phat Trading ehf hefur, í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, innkallað hrísgrjónaolíu vegna aðskotaefna í vörunni.  

Eftirfarandi upplýsingar auðkenna vöruna sem innköllunin einskorðast við:

Vörumerki

Rizi

Vöruheiti

Reisöl

Strikanúmer

8850345950490

Best fyrir

11.03.2021

Nettómagn

500 ml

Framleiðsluland

Thailand

Innflytjandi

Dai Phat Trading ehf, Faxafeni 14, 108 Reykjavík.

Dreifing

Dai Phat Trading ehf, Faxafeni 14, 108 Reykjavík.

Viðskiptavinum sem hafa keypt vöruna er bent á að neyta hennar ekki og farga eða skila henni í þeirri verslun þar sem hún var keypt gegn endurgreiðslu. 

Nánari upplýsingar veitir Hafsteinn Bao Duong í versluninni eða í síma 581-1962.