Innköllun á Grøn Balance sólblómakjörnum vegna skordýra

Heilbrigðiseftirlit Innkallanir matvæla

""

Krónan ehf. hefur, í samráði við matvælaeftirlit Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, innkallað Grøn Balance Økologiske Solsikkekerner (sólblómakjarnar) vegna þess að skordýr hafa fundist í vörunni.

Eftirfarandi upplýsingar auðkenna vöruna sem innköllunin einskorðast við:

Vörumerki: Grøn Balance.
Vöruheiti: Økologiske Solsikkekerner.
Strikanúmer: 5701410057497.
Nettómagn: 500 g.
Lotunúmer: Öll lotunúmer.
Best fyrir: Allar dagsetningar.
Framleiðsluland: Danmörk.
Innflytjandi: Krónan ehf., Skarfagörðum 2, 104 Reykjavík.
Dreifing: Verslanir Krónunnar um land allt.

Viðskiptavinum sem hafa keypt vöruna er bent á að neyta hennar ekki og farga eða skila henni í þeirri verslun þar sem hún var keypt.