Innköllun á grísakótilettum frá Krónunni vegna Salmonellu

Heilbrigðiseftirlit

""

Krónan ehf. hefur, í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, ákveðið að innkalla af markaði lúxus ókryddaðar og kryddaðar grísakótilettur frá Spáni vegna þess að við eftirlit á markaði hefur Salmonella greinst í vörunni.  Nánari rannsókna er þörf til að staðfesta greininguna.

Eftirfarandi upplýsingar auðkenna vöruna sem innköllunin einskorðast við:

Vörumerki: Krónan.
Vöruheiti: Lúxus grísakótilettur úrb., lúxus grísakótilettur ítölsk marinering, lúxus grísakótilettur new york.
Síðasti notkunardagur: Allar dagsetningar.
Geymsluskilyrði: Kælivara.
Upprunaland kjöts: Spánn.
Innflytjandi: Krónan ehf., Skarfagörðum 2, 104 Reykjavík.
Framleiðandi: Krónan ehf.
Dreifing: Verslanir Krónunnar um land allt.

Neytendur sem keypt hafa þessar vörur eru beðnir um að skila þeim í næstu Krónuverslun og fá þær endurgreiddar.  Nánari upplýsingar veitir: Sigurður Gunnar Markússon hjá Krónunni, smark@kronan.is.

Nánari upplýsingar um Salmonella er að finna á vefsíðu Matvælastofnunar.