Innköllun á fæðubótarefninu Nutra B Sterkar -

Innkallanir matvæla Heilbrigðiseftirlit

""

Innköllun á fæðubótarefninu Nutra B Sterkar – B vítamín extra sterkar vegna þess að magn B6 vítamíns í ráðlögðum daglegum neysluskammti fer yfir efri þol-/öryggismörk.

Aðföng hafa, í samráði við matvælaeftirlit Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, innkallað  fæðubótarefnið Nutra B Sterkar – B vítamín extra sterkar, vegna þess að magn B6 vítamíns í ráðlögðum daglegum neysluskammti fæðubótarefnisins fer yfir efri þol-/öryggismörk sem ákvörðuð eru af vísindanefndum Matvælaöryggisstofnunar Evrópu (EFSA).  Ráðlagður daglegur neysluskammtur fyrir fæðubótarefnið er 1-2 töflur á dag en í einni töflu eru 15 mg af B6 vítamíni.  Samkvæmt áliti vísindanefnda EFSA eru efri þol-/öryggismörk fyrir B6 vítamín 25 mg á dag fyrir fullorðna.

Eftirfarandi upplýsingar auðkenna vöruna sem innköllunin einskorðast við:

Vörumerki: Nutra.
Vöruheiti: B Sterkar – B vítamín extra sterkar.
Strikanúmer: 5690350054645.
Best fyrir: Allar best fyrir dagsetningar.
Nettómagn: 180 töflur.
Innflytjandi: Aðföng, Skútuvogi 7, 104 Reykjavík.
Dreifing: Varan var til sölu í verslunum Bónus, Hagkaupa og Super1 fram til 20. maí 2019.

Viðskiptavinum sem keypt hafa fæðubótarefnið Nutra B Sterkar – B vítamín extra sterkar er bent á að neyta þess ekki og farga en einnig er hægt að skila því í versluninni þar sem það var keypt gegn fullri endurgreiðslu.

Nánari upplýsingar veitir gæðastjóri Aðfanga í síma 530 5600 eða í gegnum netfangið gaedastjori@adfong.is.