Innköllun á Datu Puti sojasósu

Heilbrigðiseftirlit

""

Lagsmaður ehf. og Vietnam Market ehf. hafa, í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, ákveðið að innkalla af markaði sojasósu í 750 ml flöskum vegna þess að aðskotaefnið 3-MCPD greindist yfir mörkum í sósunni.
 

Eftirfarandi upplýsingar auðkenna vöruna sem innköllunin einskorðast við:

Vörumerki: Datu Puti.

Vöruheiti: Soy Sauce.

Nettómagn: 750 ml.

Best fyrir: 07.04.2020, 17.03.2020, 17.09.2019, 17.10.2019, 17.11.2019.

Upprunaland: Filippseyjar.

Innflytjandi: Lagsmaður ehf., Brekkuhúsum 1, 112 Reykjavík og Vietnam Market ehf., Suðurlandsbraut 6, 108 Reykjavík.

Dreifing: Verslanir Fiska.is, Nýbýlavegi 14 og Lóuhólum 2-6, og verslun Vietnam Market, Suðurlandsbraut 6.

Við eftirlit í Hollandi greindust 49 – 59 µg/kg (ppb) af 3-monochlor-1,2-propanediol (3-MCPD) í sósunni.  Hámarksmagn efnisins skv. reglugerð eru 20 µg /kg (ppb).

Viðskiptavinum Fiska.is og Vietnam Market sem keypt hafa vöruna er bent á að neyta hennar ekki og farga.