No translated content text
Fréttatilkynning frá matvælaeftirliti Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur Nr. 03/2024
Efni:
Mini market, að höfðu samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, hefur innkallað frá neytendum Chalwa Sezamowa.
Ástæða innköllunar:
Tilkynning barst í gegnum viðvörunarkerfið RASFF um að salmonella hafi greinst í nokkrum lotum af vörunni.
Hver er hættan?
Salmonella getur valdið alvarlegum veikindum, sérstaklega hjá viðkvæmum einstaklingum og hjá fólki í áhættuhópum eins og börnum, eldra fólki eða fólki með undirliggjandi sjúkdóma.
Upplýsingar um vöru sem innköllunin einskorðast við:
Vörumerki: Sultan
Vöruheiti: Chalwa Sezamowa
Geymsluþol: Best fyrir Dagsetning: 09.07.2025 og allar eldri dagsetningar
Nettómagn: 100 g
Strikamerki: 5907180567512, 5906660133780, 5906660133254, 5906660133247, 5906660133230.
Framleiðandi (pökkunaraðili): Elis Ali Eski, Póllandi
Heiti og heimilisfang fyrirtækis sem innkallar vöru:
Mini Market, Drafnarfelli 14, 111 Reykjavík.
Dreifing: Mini Market
Leiðbeiningar til neytenda: Neytendur sem eiga umrædda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki og farga en einnig er hægt að skila henni til Mini Market.
Nánari upplýsingar um innköllun: Nánari upplýsingar veitir Mini market í síma 5170107 eða í gegnum netfangið sala@minimarket.is