Innköllun á Blomsterberg citronfromage

""

Krónan ehf. hefur, í samráði við matvælaeftirlit Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, innkallað Blomsterbergs citronfromage, vegna ómerktra ofnæmis- og óþolsvalda (möndlur og hnetur). 

Eftirfarandi upplýsingar auðkenna vöruna sem innköllunin einskorðast við:

Vörumerki: Blomsterbergs
Vöruheiti: Blomsterbergs citronfromage, 116 g
Strikanúmer: 5420047405739
Nettómagn: 116 g.
Lotunúmer: Öll lotunúmer.
Best fyrir: Allar dagsetningar.

Framleiðandi: Food N Joy SA
Framleiðsluland: Belgía.
Innflytjandi: Krónan ehf., Skarfagörðum 2, 104 Reykjavík.
Dreifing: Verslanir Krónunnar um land allt.

Hnetur, þ.m.t. heslihnetur, og afurðir úr þeim eru á lista yfir ofnæmis- eða óþolsvalda.  Tekið skal fram að varan er skaðlaus þeim sem ekki eru viðkvæmir fyrir hnetum og afurðum úr þeim. 

Viðskiptavinir sem keypt hafa umrædda vöru og eru viðkvæmir fyrir hnetum eða möndlum og afurðum úr þeim eru hvattir til að neyta hennar ekki og farga eða skila henni í þeirri verslun þar sem hún var keypt.

Nánari upplýsingar veitir Ólafur Júlíusson hjá Krónunni ehf., olijul@kronan.is.