Ingibjörg Ýr Pálmadóttir hefur verið ráðinn nýr skólastjóri í Fossvogsskóla.
Ingibjörg Ýr lauk B.Ed prófi frá KÍ árið 1998 og diplómu frá KÍ í sérhæfingu í kennslu yngri barna, lestrarnám, árið 2006. Þá er hún með meistarapróf í náms- og kennslufræðum frá Háskóla Íslands. Hún hefur starfað sem kennari, deildarstjóri, verkefnastjóri og sérkennari í Fossvogsskóla frá árinu 2014 og haft umsjón með lestri og lestarkennslu. Einnig hefur hún verið stundakennari við Háskóla Íslands og leiðbeinandi í ritveri á Menntavísindasvið.
Ingibjörg Ýr er boðin velkomin í hóp skólastjóra í Reykjavík og óskað velfarnaðar í starfi.