Íbúðir við Hraunbæ og Bergþórugötu og atvinnulóðir við Bústaðaveg

Stjórnsýsla Skipulagsmál

""

Reykjavíkurborg auglýsir til sölu byggingarrétt á nokkrum lóðum og er frestur til að skila inn tilboðum til 10. apríl.  Sjá má nánari upplýsingar á lóðavef, www.reykjavik.is/lodir.

  • Við Hraunbæ eru boðnar út tvær fjölbýlishúsalóðir með heimild fyrir  116 íbúðum samtals. Heildarbyggingarmagn er nær 17 þús. fermetrar með bílakjallara sem er valkvæður. 
  • Við Bergþórugötu er leitað kauptilboða í byggingarrétt 216 fermetra íbúðarhúsnæðis fyrir allt að þrjár íbúðir. Sérstök athygli er vakin á því í útboðsskilmálum að við lóðarmörk norðan megin stendur gamall og virðulegur hlynur með mikið varðveislugildi. Tréð á að standa og mega framkvæmdir ekki skaða tréð.
  • Við Bústaðaveg á svæði meðfram Reykjanesbraut eru boðnar tvær lóðir fyrir atvinnustarfsemi. Á annari lóðinni er heimilt að byggja 3.800 fermetra og á hinni lóðinni 3.700, auk bílakjallara.

Skilafrestur tilboða í framangreindar lóðir er til 10. apríl kl. 14.00 og verða tilboð opnuð að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska stuttu síðar.

Að auki er til  sölu byggingarréttur fyrir 3.900 fermetra  atvinnuhúsnæði á 5.600 fermetra lóð að Krókhálsi 7 a. Sú lóð er boðin á föstu verði.