Íbúar sækja sand og salt

Velferð Umhverfi

""

Íbúar í Reykjavík hafa margir sótt sér salt og sand til að bæta öryggi á gönguleiðum í nágrenni sínu og heimkeyrslum, að sögn Björns Ingvarssonar deildarstjóra þjónustumiðstöðvar borgarlandsins.  

Sandur og salt er til reiðu á hverfastöðvum og verkbækistöðvum Reykjavíkurborgar.  Hverfastöðvarnar eru opnar mánudaga til fimmtudaga kl. 7.30 - 17.00 og föstudaga kl. 7.30 -15.25, en verkbækistöðvarnar eru opnar kl. 7.30 - 17.25 mánudaga til miðvikudaga og kl. 7.30 - 15.25 á fimmtudögum og föstudögum.

Stöðvarnar og staðsetning þeirra:

  • Hverfastöðin við Njarðargötu,      
  • Hverfastöðin í Jafnaseli,
  • Hverfastöðin á Kjalarnesi,
  • Verkbækistöðin við Árbæjarblett og 
  • Verkbækistöðin á Klambratúni við Flókagötu.

Íbúar eru hvattir til að hafa með sér ílát en einnig er mögulegt að fá poka á staðnum.  Skóflur eru við sand- og salthrúgurnar. 

 

Tengt efni: Hvernig er staðið að snjóhreinsun og hálkuvörnum í Reykjavík?