Hverfisskipulag Breiðholts kynnt með fjarfundi

Umhverfi Skipulagsmál

""

Í síðustu viku lagði mikill fjöldi fólks ferð sína í Gerðuberg og Mjódd þar sem starfsmenn umhverfis- og skipulagssviðs sátu fyrir svörum um vinnutillögur að hverfisskipulagi fyrir Breiðholt. Í vikunni voru líka farnar þrjár fjölmennar hverfisgöngur um Breiðholt undir leiðsögn starfsmanna sviðsins þar sem farið var yfir ýmsa þætti tillagnanna.

Á mánudag verður svo boðið upp á fjarfund með kynningum á tillögunum og hefst streymi á kynningum kl. 19.30. Fyrirlestrum verður streymt á vef Reykjavíkurborgar.

Tekið er á móti fyrirspurnum fyrir fundinn og meðan á honum stendur á netfangið hverfisskipulag@reykjavik.is. Kynningum verður einnig streymt á Facebook-síðu Reykjavíkurborgar (facebook.com/Reykjavik) og þar verður einnig mögulegt að setja inn fyrirspurnir meðan á fundi stendur. Hægt verður að skoða upptöku af fundinum að honum loknum.

Dagskrá

  • Samráð í Breiðholti 2015 – 2020: Ævar Harðarson, arkitekt
  • Helstu áherslur hverfisskipulags í Breiðholti: Ólöf Kristjánsdóttir, Óskar Örn Gunnarsson og Richard Briem hverfisskipulagsráðgjafar
  • Arnarbakki – tillaga að deiliskipulagi: Anna Björg Sigurðardóttir, arkitekt
  • Völvufell – tillaga að deiliskipulagi: Kristján Örn Kjartansson, arkitekt
  • Vetrargarður – hugmyndir um uppbyggingu: Atli Steinn Árnason, framkvæmdastjóri
  • Helstu ábendingar og áhyggjur Breiðhyltinga – Efni frá viðveru og hverfisgöngu: Halldór Árni Sveinsson, kvikmyndagerðarmaður
  • Fyrirspurnir og svör

Fundarstjóri er Gunnar Hersveinn Sigursteinsson.

Auk framsögufólks taka eftirtalin þátt í að svara fyrirspurnum:

  • Björn Axelsson, skipulagsfulltrúi
  • Þorsteinn Rúnar Hermannsson,  samgöngustjóri
  • Sigurborg Ósk Haraldsdóttir, formaður skipulags- og samgönguráð
  • Sara Björg Sigurðardóttir, formaður íbúaráðs Breiðholts
  • Óskar Dýrmundur Ólafsson, framkvæmdastjóri Þjónustumiðstöðvar