Hvatningarverðlaun velferðarráðs Reykjavíkur 2018

Mannlíf Mannréttindi

""

Velferðarráð efnir til hvatningarverðlauna fyrir eftirtektaverða alúð, þróun og/eða nýbreytni í velferðarþjónustu Reykjavíkurborgar árið 2018.

Markmið hvatningarverðlaunanna er að örva og vekja athygli á því mannbætandi og gróskumikla starfi sem fer fram í velferðarþjónustu borgarinnar.  Verðlaunin eiga að vera viðurkenning til verðlaunahafa og staðfesting þess að viðkomandi sé fyrirmynd annarra á því sviði sem um ræðir.

Hvatningarverðlaunin verða veitt í lok þekkingardags velferðarsviðs, ÞEKKVEL, sem haldinn verður 12. febrúar nk.

Tilnefna má einstakling, starfstað, hóp/verkefni sem vakið hefur athygli fyrir eftirtektaverða alúð, þróun og/eða nýbreytni í velferðarþjónustu

Tilnefningar skulu hafa borist valnefnd fyrir 5. febrúar nk.  

http://surveymonkey.com/r/hvatningarverdlaun

Nánar um hvatningarverðlaunin:

http://reykjavik.is/hvatningarverdlaun-velferdarrads

 

Nánar um hvatningarverðlaunin:

http://reykjavik.is/hvatningarverdlaun-velferdarrads