Hringtorg og biðstöðvar strætó

Samgöngur Umhverfi

""

Tvær biðstöðvar strætisvagna innan Reykjavíkur hafa verið til umfjöllunar síðustu daga með tilliti til umferðarlaga. Önnur þeirra er við Hádegismóa en hin er á Hagatorgi.

Á Hagatorgi hefur verið biðstöð lengi sem Strætó hefur nú tekið tímabundið úr þjónustu. Það er því ekki nýtt að þarna sé stöðvað við biðstöð. Það sem hefur breyst er að þarna var breidd akbrautarinnar minnkuð í sumar. Það var gert til að bæta öryggi gangandi sem þvera torgið en við Hagatorg hafa nú verið samþykktar og gerðar gangbrautir. Fram að því var hægt að aka framhjá Strætó sem stöðvaði. Farið var í þá aðgerð að bæta göngutengingar yfir torgið að ósk íbúa í gegnum verkefnið Hverfið mitt, en mikið er gengið yfir torgið. Hámarkshraði á Hagatorgi er 30 km/klst. Lengi hafa verið í þróun hugmyndir um að bæta aðgengi og nýtingu torgsins fyrir íbúa.

Hin biðstöðin sem strætó hefur tekið tímabundið úr þjónustu innan Reykjavíkur er við Hádegismóa. Þar er 50 km/klst hámarkshraði en umferð ekki mikil. Biðstöðin hefur verið þar í nokkurn tíma, a.m.k. í 10 ár án þess að við það hafi verið gerðar athugasemdir.

,,Á hvorugum staðnum verður séð að það að stöðva við biðstöðvarnar valdi hættu og þær tafir sem verða fyrir almenna umferð eru litlar," segir Guðbjörg Lilja Erlendsdóttir yfirverkfræðingur samgöngumála hjá umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar.

Reykjavíkurborg vinnur að því í samvinnu við lögreglu og Strætó að finna lausnir á þessum stöðum sem tryggja áfram gott aðgengi borgarbúa að þjónustu strætisvagna. Á meðan verða settar upp tímabundnar biðstöðvar í nágrenni beggja fyrrgreindra biðstöðva.