HönnunarMars handan við hornið

Menning og listir Mannlíf

""

HönnunarMars fer fram í ellefta sinn dagana 28. – 31. mars 2019.

Á HönnunarMars er hönnun kynnt sem atvinnugrein sem byggir á traustum grunni og gegnir veigamiklu hlutverki í samtímanum. Á meðal viðburða ár hvert eru sýningar, fyrirlestrar, uppákomur og innsetningar.

HönnunarMars sameinar allar greinar hönnunar; fatahönnun, arkitektúr, húsgagna- og innanhússhönnun, grafíska hönnun og vöruhönnun.

Viðburðir hátíðarinnar eru skipulagðir ýmist af íslenskum hönnuðum og arkitektum, fyrirtækjum eða stofnunum, en þátttakendur hátíðarinnar telja um 400 ár hvert. Aukinn fjöldi erlendra þátttakenda kemur til landsins með ári hverju til að taka þátt á HönnunarMars.

Á HönnunarMars býðst tækifæri til að auðga andann og sækja innblástur. Hátíðin er orðin mikilvægt hreyfiafl í íslensku samfélagi og er viðskiptalegt vægi hátíðarinnar mikið fyrir þátttakendur.

Nánar um dagskrá HönnunarMars2019