Hleðslustöðvar fyrir rafbíla við fjölbýlishús

Samgöngur Skipulagsmál

""

Nýjar tillögur varðandi orkuskipti í samgöngum gera ráð fyrir hleðslustöðvum við fjölbýlishús og hleðslu úr ljósastaurum svo eitthvað sé nefnt. Samgöngustjóri Reykjavíkurborgar mun leiða verkefnið í samvinnu við Orkuveitu Reykjavíkur.

Borgarráð samþykkti á fundi sínum á dag tillögu borgarstjóra um að Þorsteinn R. Hermannsson samgöngustjóri Reykjavíkurborgar veiti verkefnum um orkuskipti og rafbílavæðingu forystu fyrir hönd borgarinnar.

Verkefnin eru hluti af innleiðingu loftslagsáætlunar borgarinnar. Orkuveita Reykjavíkur hefur unnið tillögur að tilrauna og þróunarverkefnum vegna rafvæðingar samgangna og kynnti þær á opnum fundi um samgöngur í Ráðhúsi Reykjavíkur fyrir skömmu. 

Í Loftslagsstefnu Reykjavíkurborgar sem samþykkt var í júní 2016 koma fram aðgerðir til að stuðla að aukinni hlutdeild rafbíla í samgöngum. Þar voru settar fram nokkrar ákveðnar tillögur.

• Standa fyrir uppsetningu hleðslustöðva í bílastæðahúsum borgarinnar.

• Setja upp hleðslustöðvar við valdar byggingar á vegum borgarinnar fyrir gesti og starfsfólk.

• Reykjavíkurborg vinni með OR að hugmyndum um uppsetningu hleðslustöðva í hverfum.

• Setja fram áætlun um hvernig strætó og væntanleg borgarlína geti alfarið gengið fyrir orkugjöfum sem ekki losa gróðurhúsalofttegundir.

• Regluverk Reykjavíkurborgar og fyrirtækja í eigu hennar verði rýnt með það að markmiði að ryðja úr vegi hindrunum fyrir rafvæðingu samgangna og auðvelda innleiðingu þeirra.

Orkuveitan hefur nú mótað fjórar tillögur að verkefnum sem kalla á nána samvinnu OR og Reykjavíkurborgar til að verkefnin komist til framkvæmdar.

Verkefnin eru hleðslustæði fyrir landlausa rafbílaeigendur, rafhleðslur á nýjum byggingasvæðum, álagsstýringar á rafbílahleðslum með áherslu á fjölbýlishúsnæði og hleðsla úr ljósastaurum.