Himneskt, Lífrænar Chlorella töflur innkallaðar

Heilbrigðiseftirlit

""

 Innköllun á Himneskt Lífrænum chlorella-töflum vegna þess að varan inniheldur náttúrulegt súlfít yfir mörkum.

Aðföng hafa, í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, ákveðið að innkalla af markaði Lífrænar chlorella-töflur merktar Himneskt vegna þess að þær innihalda súlfít af náttúrunnar hendi yfir mörkum.   Aðföng hafa endurmerkt vöruna með orðunum „Varan inniheldur náttúrulegt súlfít“ og á innköllunin því við þær vörur sem neytendur eiga heima hjá sér og ekki er búið að endurmerkja.

Eftirfarandi upplýsingar auðkenna vöruna sem innköllunin einskorðast við:

Vörumerki: Himneskt.

Vöruheiti: Lífrænar Chlorella-töflur.

Strikanúmer: 5690350052610.

Nettómagn: 300 töflur/pakka.

Best fyrir: Allar dagsetningar.

Innflytjandi: Aðföng, Skútuvogi 7, 104 Reykjavík.

Dreifing: Verslanir Bónus (Faxafeni, Hafnarfirði, Kópavogi, Fiskislóð, Langholti Akureyri, Naustahverfi Akureyri, Holtagörðum, Laugavegi, Smáratorgi, Njarðvík, Völlum, Ögurhvarfi, Kauptúni, Nýbýlavegi), og Hagkaupa (Skeifunni, Kringlunni, Spönginni).

Hráefnið sem notað er í Himneskt Lífrænar chlorella-töflur inniheldur náttúrulegt súlfít og fer magnið yfir 10 mg/kg.  Súlfít í styrk yfir 10 mg/kg er skilgreint sem ofnæmis- eða óþolsvaldur. 

Tekið skal fram að varan er skaðlaus fyrir þá sem ekki eru viðkvæmir fyrir súlfíti.  Þeir neytendur sem eiga umrædda vöru og eru viðkvæmir fyrir súlfíti eru beðnir um að neyta hennar ekki og farga eða skila henni til þeirrar verslunar þar sem hún var keypt gegn endurgreiðslu.  Nánari upplýsingar fást hjá gæðastjóra Aðfanga í síma 530 5600 eða í gegnum netfangið gaedastjori@adfong.is.