Helga Sigurðardóttir mun stýra Fífuborg

Skóli og frístund

""

Gengið hefur verið frá ráðningu leikskólastjóra í Fífuborg í Grafarvogi. 

Helga Sigurðardóttir tekur við starfinu 13. janúar 2020. Hún lauk B.Ed. í leikskólakennarafræðum frá Háskóla Íslands 2005. Einnig lauk hún eins árs forkröfunámi í talmeinafræði við HÍ 2012 og MA-prófi í uppeldis- og menntunarfræðum 2014 með áherslu á þroska, mál og læsi. Helga hefur starfað sem deildarstjóri í 10 ár, sem sérkennslustjóri í eitt ár og sem aðstoðarleikskólastjóri í 4 ár. Hún hefur einnig starfað sem leiðbeinandi á leikskóla í Sviss. Henni er óskað velfarnaðar í starfi. 

Leikskólinn Fífuborg er í Rimahverfi í Grafarvogi. Þar dvelja að jafnaði 83 börn.