Heiðmerkurvegi lokað tímabundið

Samgöngur

""

Vegna hálku á veginum í Heiðmörk hefur honum verið lokað tímabundið til að gæta öryggis á vatnsverndarsvæðum, en mikið tjón yrði ef olía læki úr bíl sem lenti í óhappi.

Reykjavíkurborg lokaði í morgun veginum við afleggjarann að Elliðavatnsbænum og Garðabær lokaði við bílastæðið hjá Búrfellsgjá.

Mikill þjappaður snjór var á vegunum og við hlákuna myndaðist svell á vegunum.