Hefðbundið skóla- og frístundastarf eftir helgi

Covid-19 Skóli og frístund

""

Skóla- og frístundastarf mun færast í hefðbundið horf frá og með mánudeginum 4. maí.

Í auglýsingu frá stjórnvöldum, um takmörkun á samkomum vegna farsóttar, segir að frá 4. maí verði hægt að halda óskertri vistun og kennslu í skólum sem og starfsemi dagforeldra, frístundaheimila, félagsmiðstöðva og annarri lögbundinni þjónustu á leik- og grunnskólastigi.

Skóla- og frístundastarf mun því færast í hefðbundið horf frá og með 4. maí. Í ljósi þess að fjarlægðar- og fjöldatakmörk eiga þó enn við um starfsfólk og foreldra auk þess sem áfram þarf að sinna viðbótarverkefnum sem snúa að sóttvörnum, er mikilvægt að undirstrika eftirfarandi; 

- Almenn kennsla hefst samkvæmt stundaskrá 4. maí. Þetta á við um allar list- og verkgreinar, íþróttir og sund og bóklega kennslu. Nokkrir grunnskólar munu þó hafa skipulagsdag þennan dag.

- Frá og með 4. maí verður starfsemi frístundaheimila og félagsmiðstöðva hefðbundin.

- Frá og með 4. maí falla úr gildi forgangslistar almannavarna vegna starfa foreldra í framlínuþjónustu og börn þeirra fá sömu þjónustu í skóla- og frístundastarfi og önnur börn.

- Börn sem eru í skilgreindum áhættuhópum vegna Covid-19 haldi sig heima ef ráðleggingar læknis eru á þann veg.

- Hafi börn kvef- eða flensueinkenni eiga þau ekki að koma í skóla- eða frístundastarf.

- Ung börn upp að u.þ.b. 7 ára aldri sem ekki geta skilið eða virt fjarlægðarmörk í samskiptum komi ekki í skóla- og frístundastarf ef einhver á heimili þeirra er í sóttkví.

- Foreldrar koma ekki inn í grunnskóla og frístundaheimili nema nauðsynlegt sé.

- Viðburðir í skóla- og frístundastarfi verða án þátttöku foreldra, s.s. vordagar, skólaslit eða aðrir viðburðir sem hafa  verið í hefðbundnu skóla- og frístundastarfi áður með þátttöku foreldra.

- Móttaka fyrir nýja nemendahópa í grunnskóla sem krefst þátttöku foreldra getur ekki farið fram á þessu vori.

- Fundir skóla með einstaka foreldrum eru heimilir í þar til skilgreindum rýmum ef hægt er að fylgja viðmiðum um smitgát.

- Ef brýnar ástæður eru til geta foreldrar sótt um leyfi fyrir börn sín frá skólasókn. Slíkar beiðnir skulu vera skriflegar og þar staðfesta foreldrar að þeir beri fulla ábyrgð á námi nemenda á meðan leyfi varir. Leyfisbeiðnir eru lagðar fram í nemendaverndarráði. Ef leyfi er samþykkt hefur umsjónarkennari samband við nemanda og foreldra 2-3 sinnum í viku til að fylgjast með líðan og framgangi náms.

- Áfram skal gera ráð fyrir viðbótarþrifum og sprittun í skóla- og frístundastarfi.

- Áfram skal gætt hreinlætis í allri umgengni um húsnæði og í samskiptum.

- Fullorðnir skulu halda 2 metra fjarlægð sín á milli eins og aðstæður leyfa og ekki er heimilt að fleiri en 50 fullorðnir komi saman í sama rými.

Leikskólar

· Opnunartími leikskóla verður 7.30 – 16.15 fram eftir maímánuði. Í lok dags verður gengið frá, sótthreinsað og næsti dagur undirbúinn.

· Foreldrar koma áfram aðeins inn í anddyri eða fataklefa í leikskóla og aðeins einn með hverju barni.

· Börn sem eru í skilgreindum áhættuhópum vegna Covid-19 haldi sig heima ef ráðleggingar læknis eru á þann veg.

· Hafi börn kvef- eða flensueinkenni eiga þau ekki að koma í skóla- eða frístundastarf.

· Ung börn þ.e. upp að u.þ.b. 7 ára aldri sem ekki geta skilið eða virt fjarlægðarmörk í samskiptum komi ekki í skóla ef einhver á heimilinu er í sóttkví.

· Viðburðir í skóla- og frístundastarfi verða án þátttöku foreldra s.s. sveitaferðir, útskrift elstu barna og vorhátíðir.

· Fundir skóla með einstaka foreldrum eru heimilir í þar til skilgreindum rýmum ef hægt er að fylgja viðmiðum um smitgát.

· Frá og með 4. maí falla forgangslistar almannavarna vegna starfa foreldra í framlínuþjónustu úr gildi og börn þeirra fá sambærilega þjónustu og önnur börn.

· Aðlögun barna í leikskóla getur hafist á ný í smáum stíl ef aðstæður leyfa en mikilvægt er að sýna sérstaka smitgát. 

· Áfram skal gera ráð fyrir viðbótarþrifum og sprittun í skóla- og frístundastarfi.

· Áfram skal gætt hreinlætis í allri umgengni um húsnæði og í samskiptum.

· Áfram skal gætt að smitvörnum varðandi leikefni ungra barna og skipta áfram eftir dögum framboði á leikföngum í leikskólum svo hægt sé að þrífa eða láta bíða í allt að 48 klst áður en aðrir nota.

· Fullorðnir skulu halda 2 metra fjarlægð sín á milli eins og aðstæður leyfa og ekki er heimilt að fleiri en 50 fullorðnir komi saman í sama rými.