Haustlaufin hreinsuð

Samgöngur Umhverfi

""

Þessar vikurnar er verið á hreinsa laufin af götum og stígum, en farin er ein yfirferð með stórvirkum götusópum.

Yfirferðin hófst á Kjalarnesi í byrjun mánaðarins og verður lokið um miðjan næsta mánuð, en yfirferðin í heild tekur um 6 vikur. 
Umfangið er minna en í hreinsun að vori, en í einhverjum tilvikum þarf með skiltum að biðja eigendur bíla að færa þá úr götu eða leggja ekki meðan hreinsun stendur yfir. Rekstraraðilar hlaupahjólaleiga hafa verið beðnir um að sýna tillit með hvar hjólin eru skilin eftir svo þau tefji ekki hreinsun. 

Sjá má í Borgarvefsjá framvindu hreinsunar með því að opna þar valmöguleika undir „götur og stígar“.