Handverk og hönnun hefst í dag

Menning og listir Mannlíf

""

Handverk og hönnun mun halda hina árlegu sýningu á handverki, hönnun og listiðnaði í Ráðhúsi Reykjavíkur dagana 21. til 25. nóvember 2019.

55 aðilar taka þátt í sýningunni að þessu sinni og ræður fjölbreytnin ríkjum enda er gróskan mikil í íslensku handverki, hönnun og listiðnaði.

Opnunartími:
Fimmtudagur 21. nóvember kl. 16-19
Föstudagur 22. nóvember kl. 11-18
Laugardagur 23. nóvember kl. 11-18
Sunnudagur 24. nóvember kl. 11-18
Mánudagur 25. nóvember kl. 11-18

Þessi sýning hefur verið gríðarlega vinsæl frá upphafi en hún var fyrst haldin árið 2006 og dregur alltaf að sér þúsundir gesta. Það eru listamennirnir og hönnuðirnir sjálfir sem eru á staðnum og  kynna vörur sínar á sýningunni.

Viðburður á Facebook

Velkomin í Ráðhús Reykjavíkur!

Aðgangur er ókeypis!