Hagaskóli sigraði Skrekk
Skrekkshópur Hagaskóla bar sigur úr býtum á glæsilegu úrslitakvöldi Skrekks, hæfileikakeppni skóla- og frístundasviðs Reykjavíkur, sem fram fór í Borgarleikhúsinu 13. nóvember. Siguratriðið ber nafnið Líttu upp, taktu eftir og fjallar um mikilvægi þess að líta upp úr snjalltækjunum og njóta lífsins.
Í öðru sæti var Háteigsskóli með atriðið Fjörutíu sekúndur og í þriðja sæti var Seljaskóli með atriðið Fer þetta svona?. Í heildina voru 700 krakkar sem tóku þátt í Skrekksatriðunum og 24 skólar í Reykjavík.
Í ár tóku 24 skólar og 700 unglingar þátt í undanúrslitum og komust átta skólar áfram í úrslitin. 2000 áhorfendur horfðu á í salnum, 500 í hvert sinn.
- Langholtsskóli, Gerandinn er þinn besti vin
- Háteigsskóli, Fjörutíu sekúndur
- Réttarholtsskóli, Í eigin heimi
- Seljaskóli, Fer þetta svona?
- Laugalækjarskóli, Dagurinn hennar mömmu
- Landakotsskóli, Á bakvið tjöldin
- Hagaskóli, Líttu upp, taktu eftir.
- Foldaskóli, Fast fashion
Skrekkur er viðamikið samstarfsverkefni grunnskóla og félagsmiðstöðva Reykjavíkur og RÚV þar sem mikil metnaður birtist í hverju atriði.
Ljósmyndari: Anton Bjarni.