Grænn rammi Reykjavíkurborgar samþykktur

Fjármál Íþróttir og útivist

""

Grænn rammi Reykjavíkurborgar í tengslum við græna skuldabréfaútgáfu var samþykktur í borgarráði í gær.

Græni rammi Reykjavíkurborgar skilgreinir nokkur mikilvæg atriði varðandi græna skuldabréfaútgáfu borgarinnar.

Græni rammi Reykjavíkurborgar skilgreinir:

  • Hvaða fjárfestingar geta fallið undir fjármögnun Reykjavíkurborgar með grænum skuldabréfum
  • Hvernig staðið er stjórnsýslulega að því að tryggja að einungis þau verkefni sem uppfylla kröfur Græna rammans verði fjármögnuð með grænum skuldabréfum
  • Hvernig staðið er að því að tryggja að fjármunirnir séu eyrnamerktir völdum grænum verkefnum og haldið aðskildum fá öðrum
  • Hvernig staðið verði að skýrslugjöf um framkvæmdina
  • Hvernig staðið verði að staðfestingu ytri endurskoðenda
  • Hvernig fengin verði fagleg staðfesting á gæðum Græna rammans.

Nú liggur fyrir fagleg staðfesting á gæðum tillögu Reykjavíkurborgar frá CICERO (Center for International Climate Research) en flestir útgefendur grænna skuldabréfa í Evrópu leita til þeirrar miðstöðvar sem er leiðandi í alþjóðlegum loftslagsrannsóknum og baráttunni gegn loftslagsbreytingum. Samkvæmt mati CICERO fær Græni rammi Reykjavíkurborgar hæstu einkunn dökkgræna (dark green) og allir undirflokkar og verkefni fá einnig dökkgræna einkunn.

Meðal verkefna sem geta fallið undir græna rammann er t.a.m. uppbygging Borgarlínu, lagning hjólreiðastíga og göngustíga, LED væðing götulýsingar, hleðslustöðvar fyrir rafbíla og fleira sem sparar orku og dregur úr losun gróðurhúsalofttegunda.

Litið er sérstaklega til stjórnsýslulegs fyrirkomulags sem fær einnig hæstu einkunn eða framúrskarandi (excellent).