Göngugötur í miðborg Reykjavíkur á Iceland Airwaves

Samgöngur

""

Laugavegur frá Vatnsstíg að gatnamótum Bankastrætis og Þingholtstrætis og Skólavörðustígur frá gatnamótum Bergstaðastrætis að Bankastræti verða göngugötur dagana 7.-10. nóvember.

Eins og undanfarin ár verður völdum götum í miðborginni breytt í göngugötur á meðan Iceland Airwaves tónlistarhátíðinni stendur, dagana 7-10 nóvember. Þetta var samþykkt í skipulags- og samgönguráði Reykjavíkurborgar 31. október og hefur verið sent til umfjöllunar í borgarráði.

Talsverður fjöldi erlendra gesta sækir hátíðina auk fjölda Íslendinga. Auk hátíðarinnar sjálfrar verður mikið af svokölluðum „off- venue“ eða hliðarviðburðum þessa daga sem flestir verða miðsvæðis í borginni. Ekki þarf miða inn á hátíðina til þess að mæta á hliðarviðburðina og því má gera ráð fyrir mun fleiri gestum á hátíðina en þeim sem kaupa miða.

Eftirfarandi götur verða göngugötur dagana 7. til 10. nóvember á meðan á hátíðinni stendur.

Laugavegur frá Vatnsstíg að gatnamótum Bankastrætis og Þingholtstrætis og Skólavörðustígur frá gatnamótum Bergstaðastrætis að Bankastræti.

Göturnar verða opnar fyrir akstur milli kl. 07.00 og 18.00 yfir hátíðina.