Gatnamót Hverfisgötu og Ingólfsstætis endurnýjuð

Samgöngur Umhverfi

Gatnamót Hverfisgötu og Ingólfsstrætis

Framkvæmdir við endurnýjun Hverfisgötu ganga samkvæmt áætlun og í fyrramálið hefst vinna við gatnamót Hverfisgötu og Ingólfsstrætis. Loka verður gatnamótunum á meðan og beina umferð um hjáleiðir.

Gert er ráð fyrir að opna gatnamótin að nýju fyrir bílaumferð  í lok ágúst  og að framkvæmdum í heild við endurgerð Hverfisgötu milli  Ingólfsstrætis og Smiðjustígs  verði lokið í september.

Gönguleiðir að verslun og þjónustu eru opnar meðfram framkvæmdasvæðinu. Aðkomu að bílastæðum í Traðarkoti verður haldið opinni eins lengi og mögulegt er.

Framkvæmdir á Hverfisgötu ná frá  Smiðjustíg niður fyrir Ingólfsstræti og í lok sumars verður útlit götunnar það sama og á þegar endurgerðum hluta Hverfisgötu.  Lagnir veitufyrirtækja verða endurnýjaðar, sem og allt yfirborð götu og gangstétta. Lagnir í Ingólfsstræti milli Hverfisgötu og Laugavegs verða einnig endurnýjaðar.  Framkvæmdir hófust 20. maí og hafa verktakar þurft að brjóta sig í gegnum klöpp undir Hverfisgötunni. Nú þegar því er lokið er framkvæmdasvæðið stækkað.

Tengt efni: